Innlent

Tryggja þurfi tíma­bundin af­not náttúru­auð­linda í stjórnar­skrá

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Hanna Katrín segir málið líklega það stærsta sem er fyrir þinginu núna.
Hanna Katrín segir málið líklega það stærsta sem er fyrir þinginu núna. Vísir/Vilhelm

Þingmaður Viðreisnar segir ekki nóg að gera rekstrarleyfi til fiskeldis tímabundin til þess að sátt skapist um frumvarp matvælaráðherra um lagareldi. Málið sé skýrt dæmi um að gera þurfi breytingar á stjórnarskrá.

Bjarkey Olsen matvælaráðherra brást við harðri gagnrýni á frumvarp hennar um lagareldi fyrr í þessari viku þegar fulltrúar ráðuneytis hennar mættu á fund atvinnuveganefndar og lögðu til, að beiðni þingsins, að rekstrarleyfi til sjókvíaeldis í frumvarpinu yrðu gerð tímabundin.

Fyrirhugað var að leyfin yrðu gerð ótímabundin, en þau hafa hingað til verið gefin út til sextán ára.

„Við þurfum að tryggja að það að fara til baka, í að leyfið sé tímabundið, þýði ekki að út detti heimildir til að bregðast við alvarlegum brotum eða síendurteknum. Það er svo mikið undir í þessu máli: Náttúran og afkoma fólks og byggðalaga,“ segir Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar og fulltrúi í atvinnuveganefnd. Á fundi atvinnuveganefndar í morgun var lagareldi eina málið til umræðu.

„Við erum að fá til okkar gesti til að fara yfir sínar umsagnir til að átta okkur á helstu athugasemdum þeirra aðila sem málið varðar.“

Hún segir þetta mál skýrt dæmi um að breyta þurfi stjórnarskrá.

„Auðvitað sýnir þetta mál, þetta slys sem þetta er - ég ætla bara að segja það eins og er af því að við erum ekki búin að breyta þessu - í uppsiglingu, skýrt merki um að við þurfum að setja inn í stjórnarskrána ákvæði um tímabundin afnot af náttúruauðlindum. Það er það eina sem getur tryggt að þetta gerist ekki. Þingið getur tekið alls konar ákvarðanir, misgáfulegar,“ segir Hanna Katrín.

Hún segir breytingu á tímalengd leyfisveitinga ekki nóg til að skapa sátt um frumvarpið.

„Það er mjög margt annað í þessu frumvarpi. Þetta er gríðarlega flókið mál. Ég held ég geti fullyrt að það eitt og sér er ekki nóg. Þetta er gríðarlega stórt mál, sennilega eitt það stærsta. Nefndin hefur náð samstöðu um það að byrja þess vegna á þessu, láta vinna tillögur að því hvernig við breytum [tímalengd leyfa] á sama tíma og við erum að fara kerfisbundið í gegnum önnur ákvæði málsins,“ segir Hanna. 

„Við erum að tala þarna um mjög mikilvæga vaxandi atvinnugrein fyrir mörg byggðalög, þetta er afkoma fólks einfaldlega. Það er líka náttúran og við verðum að ná þarna lendingu þar sem við hugum að hagsmunum þessara aðila en náum einhvern vegin jafnvægi.“


Tengdar fréttir

Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern

fisk

Hægt verður að sekta fyrirtæki í sjókvíaeldi um allt að fimm milljónir á hvern frjóan laxfisk sem finnst þar sem hætta er á erfðablöndun, samkvæmt frumvarpi matvælaráðherra um lagareldi. Ráðherra segir frumvarpið taka miklu betur á umhverfismálum en gert hafi verið hingað til.

Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt

Í hádegisfréttum verður rætt við Bjarkeyju Olsen matvælaráðherra sem hefur nú fallist á að breyta umdeildu ákvæði í nýju frumvarpi um lagareldi sem hlotið hefur mikla gagnrýni síðustu daga.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×